Eignin er seld
101 Reykjavik fasteignasala kynnir: Falleg og vel skipulögð 3. herb íbúð í kjallara. Íbúðin er í góðu fjölbýli miðsvæðis í Reykjavik.
Nánari lýsing: Komið er inn í sameigninlegan inngang og þaðan inn á rúmgóðan gang íbúðarinnar. Á hægri hönd er gengið inn í eldhús með fallegri hvítri innréttingu, flísar eru á milli efri og neðri skápa. Við hliðina á eldhúsi eru tvö herbergi, annað hjónaherbergi og hitt minna. Bæði herbergi með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt er með baðkari og fallegri innréttingu. Stofan er björt og rúmgóð. Nýlegt harðparket er á öllum gólfum.
Íbúðinni fylgir lítil geymsla undir stiga, sem gengið er að á sömu hæð. Við hlið geymslu er gengið inn í sameiginlegt snyrtilegt þvottahús.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð töluvert m.a baðherbergi, eldhús og gólfefni. Eins hefur nýlega verið skipt um ofna og lagnir að þeim.
Dren var tekið í gegn frá kjallara um 2005.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. í síma 820 8101, á [email protected] eða sölumenn á 101 Reykjavík fasteignasölu á [email protected] eða 511-3101.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 50.200,- með vsk