Til sölu vel staðsett skrifstofu- og atvinnuhúsnæði með tveimur einkabílastæðum, alls 198,9 fm. Eignin stendur á áberandi stað á horni Hverfisgötu og Barónsstíg, á móti 10/11 með Laugaveg og Hlemm í næsta nágrenni. Húsnæðið er á 1. og 2. hæð (samtengt) og er með samliggjandi vörugeymslu þar sem aðgengi er gott. Í dag er rekin verslun með útivistarvörur ásamt skrifstofu og verkstæði. Eigninni hefur verið vel við haldið og mikil endurnýjun hefur átt sér stað. Miklir möguleikar.
Nánari lýsing:
Önnur hæð: Er um
75 fm sem er nýtt í dag sem útivistarverslun og skrifstofur (
þrjú opin rými).
Fyrsta hæð: Er um
75 fm. Farið er niður stiga í gott rými sem saman stendur af kaffistofu, miðrými með aðgengi inn í
þrjú herbergi sem geta nýst sem skrifstofur eða geymslur.
Auk þess er
50 fm rými á sér fasteignanúmeri en selst saman. Í dag er þetta rými nýtt sem
verkstæði og lager, en býður upp á mikla möguleika. Þetta rými er bjart og er með tveimur inngöngum. Stórar
lagerdyr út á sameiginlegt bílaplan.
Tvö einkabílastæði eru fyrir utan. Þrír inngangar eru inn í eignina, frá sameiginlegum inngangi (Barónsstígsmegin), frá verslunar- og skrifstofurýminu og beint frá bílastæði.
Viðhald: Eigninni hefur verið vel við haldið og mikið tekið í gegn á síðustu tveimur árum.
- Nýtt járn á þaki og undirlag yfirfarið (sperrur og pappi).
- Húsið var steypuviðgert og málað 2018.
- Nýir gluggar voru settir í sumar 2019, smávegis lokafrángangur er eftir en búið að greiða fyrir þessar framkvæmdir.
- Vatnslagnir voru endurnýjaðar fyrir fimm árum.
Eigin saman stendur af tveimur fasteignanúmerum en seljast saman.
Fnr: 222-4772 er 147 fermetrar og 200-3642 er 51,9 fermetrar.Eignin er á frábærum stað með mikla möguleika fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, verslun eða þjónustu. Einnig er hægt að skipta húsnæðinu og hafa mismunandi innganga. Staðsetning er mjög góð. Á undanförnum árum hafa miklar framkvæmdir átt sér stað við Hverfisgötu og hún tekið miklum breytingum og er í dag glæsileg gata.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín Sigurey Sigurðardóttir Lögg. fast.sali í síma 820-8101 eða á [email protected] og [email protected] eða 511-3101 og Snorri Marteins sölustjóri atvinnueigna s.845-9944 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000,- með vsk