Opið hús: 31. maí 2023 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Þjórsárgata 1, 102 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 31. maí 2023 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Bókið skoðun á
[email protected] eða í síma 771-5501
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Kjallaraíbúð í Litla Skerjafirði, einstök staðsetning í Reykjavík. Rólegt barnvænt hverfi, Vatnsmýrin, miðbær, gönguleiðir og ylströndin í göngufæri. Góð fyrstu kaup.Gengið er niður steyptar tröppur vestan megin að inngangi íbúðar.
Forstofa með fatahengi.
Eldhús bjart og rúmgott, plastparket á gólfi, hvítlökkuð snyrtileg nýleg innrétting, efri, neðri skápar og skúffur og eldavél. Gluggar á tvo vegu til suðurs að garði og vesturs að nærumhverfi sem gefa góða birtu í rými.
Baðherbergi á vinstri hönd frá forstofu, flísalagt gólf, Innrétting/skápur á gólfi með neðri skápum og skúffum, vaskur á borði skáps og speglaskápur fyrir ofan. Innangengt í flísalagða sturtu, nýleg blöndunartæki.
Stofa plastparket á gólfi, innbyggður skápur í rými og gluggi er snýr til suðurs að garði.
Svefnherbergi plastparket á gólfi, skápur og hillur.
Geymsla köld er undir útistiga norðan megin við húseign.
Sameiginlegt
þvottahús.Geymsluskúr er á lóð þar sem eign á aðgengi að geymsluplássi að hluta.
Þak endurnýjað 2005.
Gluggar endurnýjaðir að hluta í eign 2014.Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.