Boðaþing 2, 203 Kópavogur
87.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
144 m2
87.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2007
Brunabótamat
63.380.000
Fasteignamat
67.350.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Snyrtilega vel staðsetta eign í lyftuhúsi í vinsælu hverfi í Þingunum í Kópavogi, einkar fallegt útsýni er úr íbúð.  
Rúmgóð þrjú svefnherbergi á svefnherbergisgangi. Svalir er vísa í austur að Hafravatni og til vesturs. Stutt í gönguleiðir, skóla, leikskóla og öll helsta þjónusta í nærumhverfi. Sérbílastæði er í bílakjallara. 

Komið er inn í snyrtilega sameign, lyfta og eða stigi tekin upp í íbúð.
Forstofa
 með flísum á gólfum og góðum forstofuskáp ásamt bekk sem er hluti af innréttingu.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru á gangi öll parketlögð og tvö með skáp.
Baðherbergi einkar rúmgott 
á svefnherbergisgangi, flísalagt gólf og veggir, baðinnrétting með skápum undir borði, handlaug þar ofan á, baðskápur við hlið innréttingar og spegill með innbyggðri lýsingu fyrir ofan vask innréttingar. Baðkar, handklæðaofn, sturtuklefi og upphengt salerni. Gluggi á baðherbergi þarfnast viðgerðar.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými með mikla möguleika og með útgengi út á rúmgóðar svalir með góðu útsýni að nærumhverfi.
Eldhúsinnrétting
er vegleg með góðu skápaplássi efri og neðri skápum og skúffum, ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur þar fyrir ofan og gott vinnuborðpláss. Flísalagt er á milli skápa. Nægt pláss er fyrir eldhúsborð við glugga með fallegu útsýni til austurs.
Þvottahús er innan íbúðar flísalagt og með nettri innréttingu, borð ásamt vaski og skáp þar undir.

Geymsla er í kjallara hússins ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Sérstæði fyrir íbúð er í bílakjallara.
Sameiginleg bílastæði eru fyrir framan aðalinngang hússins.

Góð eign vel staðsett í Þingunum þar sem öll helsta þjónusta og afþreying er í göngufæri og næsta nágrenni. 


Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501. 


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 






 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..