Bólstaðarhlíð í fjármögnunarferli 36, 105 Reykjavík (Austurbær)
104.500.000 Kr.
Hæð
5 herb.
155 m2
104.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
56.990.000
Fasteignamat
82.850.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einkar vel staðsetta bjarta hæð með karakter í botnlanga á vinsælum stað í Hlíðunum ásamt bílskúr sem er nýlega innréttaður sem studioíbúð. Gott aðgengi og stór sameiginlegur garður við húseign.

Hæðin samanstendur af, forstofugangi, gangi, opið eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, hjónaherbergi, svölum, tveimur barnaherbergjum.
Komið er að húseign og gengið upp steyptar tröppur að sameiginlegum inngangi. Forstofa dúklögð og með aðgengi að íbúðum efri hæðar og að sameiginlegu þvottahúsi og sér geymslu í kjallara. 

Lýsing eignar:

Rúmgóður parketlagður gangur þegar komið er úr forstofu er tengir öll rými eignar. Á hægri hönd frá gangi er einkar bjart og rúmgott rými eldhúss, stofu og borðstofu.
Eldhús, korklagt og með neðri skápum og skúffum og hvítlökkuðum efri skápum að hluta. Gott vinnuborðpláss og flísalagðir veggir með ljósum flísum. Ofn og helluborð, eldhúsvaskur við glugga.
Stofa og borðstofa parketlögð, eru samliggjandi einkar bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum er gefa gott útsýni að garði og nærumhverfi.
Baðherbergi flísalagt gólf, baðkar/sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Baðinnrétting neðri skúffur og handlaug á borði, efri speglaskápur með innbyggðri lýsingu. Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi og innbyggðar hillur þar við hliðina.
Hjónaherbergi parketlagt við enda gangs einkar rúmgott með góðu skápaplássi og með útgengi út á austursvalir.
Tvö barnaherbergi liggja við hlið hjónaherbergis í enda gangs.
Barnaherbergi minna, parketlagt og með glugga er snýr í austur.
Barnaherbergi parketlagt og með góðu efra skápaplássi og neðri skúffum, innangengt í það svefnherbergi frá minna herbergi. (Möguleiki er á að gera inngang að barnaherbergi frá stofu).

Geymsla sér í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara hússins.
Sameiginlegur garður.

Bílskúr 37,5 fm hefur nýlega 2023 verið innréttaður sem hlýleg studioíbúð, góðir tekjumöguleikar.
Snyrtileg eldhúsinnrétting, neðri skápar og skúffur, vaskur, helluborð og ofn.
Baðherbergi, flísalagt gólf, hiti í gólfi, opin sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og handlaug. Ítalskar fallegar marmaraflísar á veggjum á baðherbergi.
Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi í bílskúr.
Gólf flotuð 2023 og vinylparket lagt yfir. Flísar á baðherbergi.
Rafmagn yfirfarið og pípulagnir endurnýjaðar.
Sér bílastæði fyrir framan bílskúr.

Skipt nýlega um hluta glers í nokkrum gluggum íbúðar á hæð.
Hús múrviðgert 2021-2022
Þak endurnýjað 2008.

Einkar spennandi eign á eftirsóttu íbúðasvæði í Reykjavík, þar sem öll helsta þjónusta og afþreying er í göngufæri, skólar, leikskólar, Klambratún, Öskjuhlíð, Kringlan og miðbær í göngufæri.
Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 







 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..