Freyjugata seld 25c, 101 Reykjavík (Miðbær)
45.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
44 m2
45.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1927
Brunabótamat
21.415.000
Fasteignamat
36.800.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsetta bjarta eign með aukinni lofthæð á jarðhæð við Freyjugötu í miðbæ Reykjavíkur. Útgengi er úr íbúð út á sameiginlegan reit sem er bakatil við húseign. Miðborgin, mannlífið allt um kring og öll helsta þjónusta og afþreying í göngufæri. 

Lýsing eignar: 

Komið er inn í sameiginlegan inngang, flísar á gólfum og inngangur íbúðar í enda gangs. 
Eldhús, bjart parketlagt og með nýlegri hvítlakkaðri innréttingu. Efri skápar mjög gott skápapláss ná í fulla lofthæð, neðri skúffur og vaskaskápur, vaskur og eldavél.
Útgengi er frá eldhúsi að sameiginlegum bakarði/porti
Stofa parketlögð, bjart rými og með glugga er snýr til suð-vesturs að nærumhverfi.
Svefnherbergi er inn af stofu, parketlagt og með skáp. Gluggi svefnherbergis vísar að sameiginlegum garði.
Baðherbergi flísalagt gólf, salerni, handlaug og sturtubotn. 
Geymsla 01-05 er í matshluta 2 að Freyjugötu 25.
Í forstofugangi við inngang íbúðar á hægri hönd er kyndiklefi þar er tenging fyrir þvottavél.

Einkar sjarmerandi íbúð í miðbæ Reykjavíkur, góð fyrstu kaup.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected] 
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 


 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..