Skógarvegur í fjármögnunarferli 6, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
84 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2021
Brunabótamat
58.100.000
Fasteignamat
70.950.000

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Sjarmerandi 2ja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi í Fossvogi.
Eigninni fylgir sérafnotaflötur á lóð 28,7 fm samkvæmt samþykktri teikningu.
Stutt í allar áttir á höfuðborgarsvæðinu, göngu og hjólaleiðir niður að Fossvogi og að Ylströnd og Öskjuhlíð.

Lýsing:
Snyrtileg sameign, mynddyrasímar og lyfta. Sér stæði í bílageymslu.
Íbúð samanstendur af: Forstofu, þvottahúsi, opnu rými eldhúss og stofu, svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóðum suðurpalli.
Harðparket er á gólfum íbúðar og flísar á baðherbergi.

Forstofa með góðum fataskáp.
Parketlagt opið rými eldhúss og stofu, útgengi er út á rúmgóðan suður pall frá stofu. Gólfsíðir gluggar í stofu er vísa í suður að Fossvogi og nærumhverfi.

Eldhús: Stór eyja með góðu skúffuplássi, granít borðplötu, spanhelluborði og sæti fyrir allt að 3 barstóla við eyju.
Innrétting til móts við eyju hvítir efri skápar ásamt viðarskápum að hluta, neðri skápar og skúffur.
Lýsinga er á milli efri og neðri skápa í innréttingu.
Ofn í vinnuhæð, gert ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Þvottahús er inn af eldhúsi, flísalagt gólf og niðurfall.
Innrétting með efri skápum og rými fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skúffum þar undir.

Svefnherbergi er rúmgott parketlagt og innangengt er í fataherbergi með hillum og skúffum. Gluggar í herbergi vísa í suður að palli og nærumhverfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, innangengt í opna rúmgóða sturtu, handklæðaofn og upphengt salerni.
Baðinnrétting, efri speglaskápur, lýsing undir skáp.
Handlaug á granít borði og skúffur undir ásamt baðskáp þar við hliðina.

Einkar vel staðsett eign á besta stað þaðan sem öll helsta þjónusta og afþreying er í göngufæri.
Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 






 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send..

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send..